Átak heilsurækt

Næsta grunnnámskeið hefst 20.febrúar. Þjálfarar: Arnar Gauti Finnsson og Sævar Kristjánsson Crossfit þjálfarar (Sviss 2012) Hvað er

Krossþjálfun


Næsta grunnnámskeið hefst 20.febrúar.

Þjálfarar: Arnar Gauti Finnsson og Sævar Kristjánsson Crossfit þjálfarar (Sviss 2012)

Hvað er Krossþjálfun?

Krossþjálfun Íslands er mikið meira en bara líkamsrækt. Þetta er samfélag einstaklinga sem stefna að því að bæta form, styrk og þol – unnið er með þjálfurum sem eru menntaðir Crossfit þjálfarar og miklir áhugamenn um allt sem viðkemur heilsu og næringu. Sérfræðikunnátta þjálfara og fjölbreytileiki þeirra sem æfa krossþjálfun gera hvern tíma að einstakri upplifun.

Þjálfarar: Við notumst við þekkingu okkar og reynslu af Crossfit sem okkar aðal þjálfunaraðferð. En blöndum því saman við ýmislegt og bætum öðru við. Við einbeitum okkur að því að efla eftirfarandi 10 líkamlegu eiginleika – hjarta- og öndunarþol, úthald, styrkur, liðleiki, kraftur, hraði, samhæfni, lipurð, jafnvægi og nákvæmni. Æfingarnar eru síbreytilegar og alltaf skemmtilegar.

Iðkendur: Það er mjög fjölbreyttur hópur sem stundar Krossþjálfun – fólk sem er í toppformi, fólk sem var í toppformi, fólk sem langar að komast í toppform, heimavinnandi húsmæður, heimavinnandi húskarlar, bankamenn, ritarar, slökkviliðsmenn, lögreglukonur, íþróttafólk, verslunarfólk, nemendur og kennarar og svona má endalaust telja.

 Hvaða aðferð notar Krossþjálfun?

Krossþjálfun er styrktar- og heilsuþjálfun sem byggir á því að vera síbreytilegt, notast við eðlislegar hreyfingar og mikinn ákafa.

Þrek – hlaupum, hjólum, róum og syndum

Fimleikar – hagnýtar hreyfingar sem bæta líkamsbeitingu, liðleika og lipurð.

Lyftingar – ólympískar lyftingar og kraftlyftingar sem byggja upp kraft og snerpu

Annað – allt mögulegt, ef það bætir líkamlegt form gerum við það.

Markmið okkar er að vera tilbúin fyrir hvað sem er, hvað sem er!

 

Er Krossþjálfun eitthvað fyrir mig?

Krossþjálfun er fyrir alla sem vilja koma sér í form, bæta form sitt, styrkja sig, bæta líkamlegt ástand o.frv. Krossþjálfun er einnig fyrir þá sem hafa ekki tíma til að færa í ræktina, eða eru staðnaðir í þjálfun sinni. Krossþjálfun er einnig fyrir þá sem vilja verða betri íþróttamenn í hvaða íþrótt sem, allt frá skák til fótbolta, boccia til fallhlífarstökks.

 

Við hverju má ég búast á námskeiði í Krossþjálfun?

Á grunnnámskeiði  er farið í undirstöður Krossþjálfunar, sérstök áhersla er lögð á Ólumpískar lyftingar og fimleika. Ítarlegar er farið í tækni og hreyfingar.

Æfing dagsins – er svo fyrir þá sem eru komnir með grunnatriði Krossþjálfunar á hreint. Æfing dagsins er síbreytileg og sjaldnast sú sama. Þó eru nokkrar „benchmark“ æfingar sem við tæklum með reglulegu millibili, til að sjá árangurinn. Allar æfingar eru mælanlegar í tíma, þyngd eða endurtekninga.  Æfingu dagsins má skipta upp í fjóra hluta: Upphitun, tækni, ÆD og teygjur.

 

Hvernig er dæmigerð ÆD byggð upp?

Æfingar dagsins eru síbreytilegar, en byggja allar á sama grunni:

-          Olympískum lyftingum/Kraftlyftingum (Deadlift, Clean, Squat, Presses, Jerks, Snatch)

-          Fimleikum (Upphýfingum, dýfum, kaðlaklifri, armbeygjum, upsetum, uppsetum)

-          Þol (hlaup, hjól, róður, sund, sipp)

 

Hvað kostar Krossþjálfun?

Skoðaðu verðsíðuna okkar hér.

Hvernig nálgast ég frekari upplýsingarum Krossþjálfun?

Byrjaðu á því að skoða þetta hér.

Svo má alltaf hafa samband við þjálfara.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf