Innri vöðvastyrkur, jafnvægi og djúp innri vöðvaþjálfun í Fit -
Pilates:
Fit - Pilates þjálfar alla kviðvöðva, vöðva neðra baks, vöðva umhverfis hryggsúluna, lærvöðva að innan og utan, mjaðmir og rassvöðva. Þegar
þessir vöðvar hafa styrkst er stoðkerfi líkamans komið með meiri stuðning. Þá uppgötvar fólk nýjan og áður óþekktan styrk og jafnvægi sem nýtist vel í betri líkamsstöðu í daglega lífinu og í öðrum íþróttagreinum. Fólk fær ekki aðeins meiri orku, snerpu og hraða, heldur einnig betri vörn gegn meiðslum vegna fleiri virkra vöðva, betra jafnvægis og meiri liðleika. Áhugavert fyrir golf spilara sem þurfa styrk, liðleika og mýkt.









