Átak heilsurćkt

Gunnar, Anton, Egill Daði, Sandra, Inga, Guðrún, Harpa og Halldór Jón, Sævar,Sigurður og Egill Ármann     Viltu komast að hjá góðum einkaþjálfara og ná

Einkaţjálfarar í Átaki v. Strandgötu og Átaki v. Skólastíg


Gunnar, Anton, Egill Daði, Sandra, Inga, Guðrún, Harpa og Halldór


Jón, Sævar,Sigurður og Egill Ármann

   
Viltu komast að hjá góðum einkaþjálfara og ná hámarksárangri í líkamsrækt?

Einkaþjálfun er fyrir alla sem vilja komast í betra form undir leiðsögn þjálfara sem er vel menntaður á sviði heilsu og næringar. Með einkaþjálfun er leitast við að viðskiptavinur nái góðum árangri , fylgst er vel með framförum og einkaþjálfarinn stýrir tímanum frá upphafi til enda.

Í upphafi einkaþjálfunar eru teknar allar helstu ástandsmælingar, vigtun, sentimetramæling, fitumælt og tekin þolpróf.  Einkaþjálfarar veita einnig gagnleg ráð um hvernig þú viðheldur árangrinum í framtíðinni.
Viðskiptavinur getur ákveðið hversu marga tíma hann vill undir leiðsögn. Flestir byrja á 12 tímum og halda síðan sjálfir áfram eftir það eða koma til einkaþjálfarans í nokkur skipti þar á eftir. Enn aðrir nýta  sér þjónustu einkaþjálfara til lengri tíma, jafnvel í mörg ár.

Fyrir þá sem ekki hafa stundað líkamsrækt áður, er einkaþjálfunin góð leið til að tryggja að æfingar séu rétt gerðar og settar saman á þann hátt sem vænlegastur er til árangurs. 

Hópþjálfun

Eins útfært og einkaþjálfun, nema nú stýrir einkaþjálfari fleiri en einum aðila.
Því ekki að fara saman til einkaþjálfara, 2-5 saman í hóp?
Æfingar fara fram í  tækja- og þolfimisal og frábær stemning myndast innan hópsins.
Mikil hvatning frá þjálfara og öðrum aðilum í hópnum verður til þess að allir ná árangri. Tilvalið fyrir vinahópinn, saumaklúbbinn, fjölskylduna, o.s.frv.
2-5 saman í hóp. Minni kostnaður - Meira fjör!

Gefðu þig fram við afgreiðslu Átaks, hringdu í síma 461-4444 og fáðu frekari upplýsingar eða sendu póst á netfang þess þjálfara sem þig langar til. Einkaþjálfarinn hefur síðan samband við þig, við fyrsta tækifæri. Svo einfalt er það....

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf