Átak heilsurækt

Næsta námskeið hefst 24.apríl 2012 Skráning hefst 3.apríl - þegar námskeiðsgjald hefur verið greitt er hægt að byrja að æfa. "Ég get, ég skal" er nýtt

Ég get, ég skal



Næsta námskeið hefst 24.apríl 2012
Skráning hefst 3.apríl - þegar námskeiðsgjald hefur verið greitt er hægt að byrja að æfa.

"Ég get, ég skal" er nýtt námskeið í Átaki. Námskeiðið er ætlað konum og körlum sem eru komnir vel yfir kjörþyngd - 15+. Námskeiðið er bæði fyrir þá sem hafa verið að hreyfa sig en einnig fyrir þá sem hafa lítið sem ekkert hreyft sig.

Ég get, ég skal snýst um okkur, hvað við ætlum okkur, getum við náð árangir á réttan hátt, æft markvisst að því að ná góðum árangri og sjá mun á styrk og þoli en ekki síður á sálinni. Allt er gert til þess að þáttakendur finni mun á líkama og sál.

Litið er á árangur einstaklingsins en einnig hópsins í heild sinni og lagt upp úr því að hópurinn styðji hvort annað í að ná árangri.

Mælingar eru í upphafi og lok námskeiðs sem stendur yfir í 6 vikur, en á hverjum mánudegi skilar hver og einn matardagbók og æfingadagbók. Fastir tímar eru 2x í viku en allir þurfa að skila inn 2 aukatímum á viku í æfingadagbókinni.

Þegar námskeiði líkur eru mælingar í 3 mánuði á eftir, þ.e. mikil eftirfylgni.

Ath. að aðeins 15 komast á hvert námskeið.


Tímar: þriðjudaga og föstudaga kl. 10:45

Tíminn er 60 mínútur og kort í Átaki innifalið í verði þessar 6 vikur.
Verð: 15,900
Þjálfari: Guðrún Gísladóttir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf