Átak heilsurækt

Boot Camp - Næsta námskeið: 20.júní 2011   Grænjaxlar og framhald :-) Grænjaxlar Erfiðasta skrefið fyrir marga er að taka af skarið og skrá sig í Boot

Boot Camp - nýtt grænjaxlanámskeið hefst 20.júní

Boot Camp - Næsta námskeið: 20.júní 2011

 
Grænjaxlar og framhald :-)

Grænjaxlar

Erfiðasta skrefið fyrir marga er að taka af skarið og skrá sig í Boot Camp. Lausnin við því eru Grænjaxlarnámskeiðin en það eru Boot Camp námskeið fyrir fólk sem t.d. hefur ekki hreyft sig í lengri tíma og kýs aðlögunartíma áður en farið af stað á hefðbundið námskeið, þá sem eru að koma til baka úr meiðslum eða af hver sem vill byrja aðeins hægar. Æfingarnar eru ekki auðveldar en farið er hægar í sakirnar svo fólk nær góðum tökum á helstu grunnæfingum ásamt því að byggja upp grunnstyrk, þol og sjálfstraust. Þátttakendur geta skipt yfir í aðra Boot Camp hópa um leið og þeir treysta sér til, hvenær sem er á námskeiðinu og eru þjálfararnir duglegir að hvetja einstaklinga til þess. Þeir sem vilja vera í Grænjaxlahóp lengur en eitt námskeið er það auðvitað frjálst, hver og einn skiptir þegar honum sýnist.

 Skráning er hafin. Hægt er að byrja að æfa um leið og námskeiðsgjald hefur verið greitt.

Tímar 3x í viku: Verð 12,900.-
(Frítt í alla aðra opna tíma og tækjasali í Átaki heilsurækt v.

Boot camp - framhald:

Í Boot Camp eru þér engin takmörk sett!  Þú getur alltaf meira en þú heldur og þjálfarar krefjast mikils af þér. Með réttri hvatningu og sjálfsstyrk lærir þú að mörk þín liggja töluvert hærra en þú hefur áður talið og þú getur náð þeim markmiðum sem þú setur þér hverju sinni. við viljum að æfingarnar skili þér ekki bara líkamlegum ávinningi heldur einnig andlegum og  að þjálfunin nýtist þér í daglegu lífi eins og það hefur gert hjá svo mörgum sem sækja Boot Camp námskeiðin.
Þó að kröfur séu settar á hvern og einn eru kröfurnar sem settar eru á hópinn í heild sinni oft meiri. Kostir þess að æfa í hóp með öðrum eru margir og ótvíræðir. Það er enginn einn í Boot Camp og þú hvetur æfingafélaga þína jafn mikið með anda þínum og frammistöðu í tímaum og þeir hvetja þig. Allir vinna saman að sameinilegum markmiðum og æfingarnar eru skemmtilegar og framandi. Við viljum að þú hafir gaman af því að æfa og því er samvinna og hvatning æfingafélaga þinna meðal mikilvægustu þátt í Boot Camp.

Allar nánari upplýsingar á http://www.bootcamp.is/

Þjálfarar: dúnna, Gulli, Harpa Jóns, Sandra og Sævar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf