Bænaslökun og Yoga.
Tímarnir fara fram í Akureyrarkirkjum og eru öllum opnir. Akureyrarkirkja og Átak vinna saman að yndislegum tíma sem fer fram í hádeginu á þriðjudögum.
Sr. Hildur Eir Bolladóttir og Ulrika Seiler sjá um þessa yndislegu tíma sem standa yfir í um 60 mínútur.
Tíminn samanstendur af Yoga, fyrirbæn og slökun.
Átak og Akureyrarkirkja bjóða alla velkomna í tímana án endurgjalds.
Slökun a yndislegum stað, kyrrð og ró - þar sem líkami og sál endurnærist
Vegna endurmenntunar Ulriku er bænaslökun og Yoga í fríi til 20.mars 2012









