
Anton Björn Christensen
Menntun: Diplomtræner 3 hjá DIF (Danmarks Idræts-Forbund)
Tölvupóstur: antoneinkathjalfun@gmail.com
____________________________
Útskrifaðist úr gamla danska þjálfaraskólanum, sem nú heitir Aalborgs Sportshøjskole, sem Diplomtræner 3 frá danska íþróttasambandinu. Var þar undir handleiðslu fyrrum og núverandi landsliðsþjálfara og landsliðsmanna Dana í sundi, handbolta, kraftlyftingum, badminton, körfubolta og m.a.s. dansi, í kvenna- og karlaflokki. Margir þeirra hafa tekið þátt í Ólympíuleikunum, bæði sem leikmenn og þjálfarar.
Auk þessa náms hef ég setið ýmsa fyrirlestra tengda matarræði, anatómíu, uppbyggingu á prógrömmum, þjálfun afreksíþróttamanna og svona mætti lengi telja.
Ég tek að mér einstaklinga á öllum aldri.
Sérhæfi mig í vöðva- og styrktaraukningu, en hef þó einnig náð góðum árangri með fólki sem vill léttast/grennast, þeim sem vilja ná meira út úr sinni íþrótt, og þeim sem vilja líða betur í sínu daglega lífi.
Ég þjálfa bæði í Átaki við Skólastíg og Strandgötu. Ódýr og mjög sveigjanlegur hvað æfingatíma varðar.
___________________________
* Býð upp á 3 til 5 æfingadaga í viku, 4 vikur í senn.
* Ástandsmælingar (fituprósentu-, ummáls- og þyngdarmæling) á tveggja vikna fresti.
* Allir fá æfingaáætlun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins, engar tvær æfingaáætlanir eru alveg eins.
* 15% afsláttur handa þeim sem mæta með vini/maka.
* "Nánari upplýsingar í tölvupósti"
Tölvupóstur: mailto:antoneinkathjalfun@gmail.com









