14.02.2012

Ulrika fer í frí frá og með 16.febrúar. Tímar í Anusara Yoga, Qi Gong og bænaslökun og Yoga í Akureyrarkirkju falla því niður. Ulrika er á leið út til Indlands að klára nám sitt í Ayurveda, en Ulrika vinnur einnig í Aqua SPA, með nálastungur og almennt nudd.
Ayurveda nudd byggir á forni hefð Ayurveda, en Ayurveda er læknisfræði Indverja og hafa
Indverjar notað og þróað þessa læknisfræði í meira en 5000 ár. Orðið ´´Ayurveda´´ þýðir
´´Vísindi lífsins´´og lítur Ayurveda á mannin sem þrískipta veru, eða vitund, hugur og líkami.
Ayurveda hjálpar manninum að koma á jafnvægi allra eiginleika sinna og tengjast sjálfum
sér, hrynjanda lífsins og náttúrunnar. Ekki er einungis nóg að koma á jafnvægi líkamans, eða hugans heldur er Ayurveda mjög
heildrænt form heilsueflingar þar sem allir þættir eru í raun mikilvægir þ.e. líkami, hugur, vitund.
Ayurveda er lífsstíls fræði í víðasta skilningi.
Ayurveda býður m.a. upp á meðferðir í Nuddi þar sem olíur fyrir þig
og þína líkamsgerð eru notaðar og nudd aðferðum sem henta þér eru í fyrirrúmi.
Ayurveda mælir einnig með sérstöku matarræði fyrir
þína líkamsgerð, einnig jurtum, hugleiðslu, möntrum og réttum lifnaðarháttum almennt og ávallt miðast meðferðin við
þína líkamsgerð.
Ulrika kemur aftur til kennslu í Anusara yoga miðvikudaginn 21.mars.
Ulrika kemur aftur til kennslu í Anusara yoga miðvikudaginn 21.mars.









