Átak heilsurækt

Tvíþraut á sunnudaginn Flott tvíþrautarkeppni verður haldin á sunnudaginn í Átaki Heilsurækt v. Skólastíg og Sundlaug Akureyrar. 400m sund og 3 km

Tvíþraut á sunnudaginn

Flott tvíþrautarkeppni verður haldin á sunnudaginn í Átaki Heilsurækt v. Skólastíg og Sundlaug Akureyrar. 400m sund og 3 km hlaup.

Hvetjum ykkur til að skrá ykkur í skemmtilega keppni :-)

2-ÞRAUT


 

Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA og Þríþrautarfélag Norðurlands

 verður með 2-þraut Sunnudaginn 26. febrúar kl. 10:00 í samvinnu við

Sundlaug Akureyrar, Átak heilsurækt, Hleðslu frá MS og Powerade frá Vífilfelli

 

Sund:

Byrjað verður á sundi 400 m.,  tveir til þrír keppendur verða  á hverri braut í einu að synda. Sundlaugin er 25 m. á lengd þannig að 400 m. eru 16 x25 m.  Ræst verður í sundið kl. 10:15, 10:35, 10:55, og 11:15

 

Hlaup:

Hlaupið er á brettum hjá Átaki heilsurækt og verða brettin með 0% halla og verða hlaupnir 3 km.

 

Tímataka og flokkaskipting:

Tímataka verður með hefðbundnu þríþrautarsniði, þ.e. ekkert stopp á milli þrauta.

Keppt verður í flokkum 39 ára og yngri og 40 ára og eldri, karlar og konur

 

Skráning:

Skráning á netfanginu elias@ferdamalastofa.is fyrir kl. 22:00 föstudaginn 24. febrúar.  Vinsamlega tilgreinið nafn og aldur við skráningu ásamt áætluðum sundtíma fyrir 400 m. Ath. Hámarks fjöldi keppenda er 40 skráið ykkur því tímanlega.

 

Þáttökugjald kr. 1.000,-  greiðist í afgreiðslu sundlaugar að morgni keppnisdags.

(ath. ekki er tekið við kortum)

 

 

Nánari upplýsingar veita

Guðmundur Bj. Guðmundsson 822 4706 og Elías Bj. Gíslason 898 9435





Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf