Átak heilsurækt

Næstu námskeið hefjast 20 og 21.febrúar, skráning hefst 6.febrúar Betra form er að klára 3 vikuna. Konunum gegnur ljómandi vel og leggja mikið á sig til

Næstu námskeið hefjast 20 og 21.febrúar, skráning hefst 6.febrúar


Betra form er að klára 3 vikuna. Konunum gegnur ljómandi vel og leggja mikið á sig til að ná árangri. Vikulega fá þær fræðslu um mataræði, uppskriftir, mælingar og fleira. Sjaldan hafa jafn margir verið á námskeiðinu hjá Amí, enda námskeiðið það vinsælasta í Átaki til margra ára.

Yfir 30 karlar eru hjá Tufa í Skólastíg á námskeiðinu KÁTIR KARLAR. Tufa hvetur þá vel áfram þannig að þeir sjá fljótt mun á þoli og styrk. Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar og fara fram í Skólastíg.

Power Fit Pilates er komið til að vera enda viðskiptavinir hæstánægðir með framhaldsnámskeið í Fit Pilates, góður munur og töluvert erfiðara frá venjulegu Fit pilates tímunum sem hafa verið hjá okkur í 4 ár, en við bjóðum upp á 4 opna tíma í Fit Pilates fyrir utan námskeiðið. Kristín og Lísbet stýra námskeiðinu.

"Ég get, ég skal" er námskeið fyrir þá sem eru 15kg eða meira yfir kjörþyngd. Guðrún Gísla stýrir námskeiðinu og hvetur vel áfram og býður upp á fræðslu þannig að árangur kemur fljótt í ljós. Skemmtilegir tímar 2x í viku, skila þarf inn matardagbók og æfingadagbók vikulega, vikulega mælt og ástandsmælingar i upphafi og lok námskeiðs.

Frítt kort í alla almenna tíma og tækjasalir í Átaki Strandgötu og Skólastíg fylgir námskeiðsgjaldi.
Námskeið í Átaki, öll 6 vikna námskeið kosta 15,900.-

Næstu námskeið hefjast 20 og 21.febrúar
Skráning hefst 6.febrúar



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf