Átak heilsurækt

Mikið af námskeiðum byrja á morgun Betra form byrjar hjá Amí á morgun. Eins og svo oft áður er orðið fullt hjá Amí enda fjölbreytt, árangursríkt og

Mikið af námskeiðum byrja á morgun


Betra form byrjar hjá Amí á morgun. Eins og svo oft áður er orðið fullt hjá Amí enda fjölbreytt, árangursríkt og skemmtilegt námskeið í boði hjá Amí, þar sem árangur hefur verið frábær. Mikið er lagt upp úr góðri fræðslu, hvatningu og boðið upp á fyrirlestur hjá næringarsérfræðingi, Kristínu Steindórsdóttur.

"Ég get, ég skal" byrjar á morgun í 1.skipti en það er námskeið fyrir konur og karla sem eru 15kg (eða meira) of þungir og vilja koma í markvissa, árangursríka þjálfun. Á námskeiðinu þarf að skila inn æfinga- og matardagbókum vikulega.
Það er einnig orðið fullt á "Ég get, ég skal"

(Þessi 2 námskeið eru 6 vikur og "rúlla" á 6 vikna fresti. Skráning á þessi námskeið hefst aftur 6.febrúar)

Hátt í 30 karlar eru komnir á Kátir karlar, námskeið hjá Tufa sem hefst einnig á morgun kl. 19:00. Kennt er 3x í viku í Skólastíg.
Flottir, fjölbreyttir og árangursríkir tímar.

Góða skemmtun og gangi ykkur vel :-)



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf