Sex mismunandi námskeið hefjast hjá okkur frá 30.ágúst-14.september.
* Unglingafitness, námskeið fyrir alla hressa unglinga í 8.-10.bekk
* Betra Form - Átaknámskeið fyrir allar hressar konur, hver og ein vinnur eftir sinni getu og allir geta verið með. (2 námskeið í boði)
* Fit Piltates - Námskeið þar sem aðaláherslan er lögð á að styrkja djúpvöðva kviðs og bak, ásamt styrkjandi æfingum
fyrir alla aðra vöðvahópa. Notaður er jafnvægisbolti, dýna og lóð
* Karlanámskeið - Námskeið 3x í viku fyrir alla karlmenn sem vilja komast í gott form - Switching, þrek og tækjasalur
* Meðgöngu YOGA - fyrir ófrískar konur sem vilja halda sér í formi og þær sem vilja vera vel tilbúnar þegar kemur að
fæðingunni sjálfri. Áhersla á jafnvægi, styrk og öndun
* +60, líkamsrækt fyrir konur og karla, 60 ára og eldri 2x í viku. Þjálfari Þorleifur Stefánsson, sjúkraþjálfari.
Námskeiðin Betra form og Fit Pilates hefjast í næstu viku, en skráning á hin fjögur námskeiðin hefst 1.september.









