Átak heilsurækt

"Ég get, ég skal" - fullt á námskeiðið - biðlisti. "Ég get, ég skal" er nýtt námskeið í Átaki. Námskeiðið er ætlað konum og körlum sem eru komnir vel

"Ég get, ég skal" - fullt á námskeiðið - biðlisti.


"Ég get, ég skal"
er nýtt námskeið í Átaki. Námskeiðið er ætlað konum og körlum sem eru komnir vel yfir kjörþyngd - 15+. Námskeiðið er bæði fyrir þá sem hafa verið að hreyfa sig en einnig fyrir þá sem hafa lítið sem ekkert hreyft sig.

"Ég get, ég skal" snýst um okkur, hvað við ætlum okkur, getum við náð árangir á réttan hátt, æft markvisst að því að ná góðum árangri og sjá mun á styrk og þoli en ekki síður á sálinni. Allt er gert til þess að þáttakendur finni mun á líkama og sál.

Litið er á árangur einstaklingsins en einnig hópsins í heild sinni og lagt upp úr því að hópurinn styðji hvort annað í að ná árangri.

Mælingar eru í upphafi og lok námskeiðs sem stendur yfir í 6 vikur, en á hverjum mánudegi skilar hver og einn matardagbók og æfingadagbók. Fastir tímar eru 2x í viku en allir þurfa að skila inn 2 aukatímum á viku í æfingadagbókinni.

Þegar námskeiði líkur eru mælingar í 3 mánuði á eftir, þ.e. mikil eftirfylgni.

Ath. að aðeins 15 komast á hvert námskeið.

Við skráum á biðlistan ef einhver afföll verða.
Næsta námskeið hefst 20.febrúar. (skráning á það námskeið hefst 6.febrúar)


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf