
Heilun.
Heilun er aðferð lækninga þar sem orku er beitt, ýmist með handayfirlögn eða fjarheilun. Læknandi áhrif heilunar verða þegar efri
líkamarnir, t.d. orku-, tilfinninga-, og geðlíkami fá leiðréttingu á orkufæði sínu. En það gerist þegar losað er um
orkustíflur sem orsakast m.a. af bældum tilfinningum. Þetta er hægt að gera með heilun og í kjölfarið leiðréttist ástand
efnis-líkamans. Það sama getur gerst þegar við breytum afstöðu okkar eða hugarfari t.d. með því að fyrirgefa. Þegar við
fáum heilun gefum við líkama okkar aðgang að aukinni orku þannig að frumur líkamans fá betra tækifæri til að starfa
rétt.
Reiki er heilun.
Reiki er ein af mörgum heilunaraðferðum. Reiki er hvorki betra né verra en aðrar heilunaraðferðir en það hentar sumum betur en öðrum. Það
sama gildir um aðrar heilunaraðferðir.









